Færsluflokkur: Menntun og skóli
16.5.2008 | 10:39
Dagur 4
Hææ
Í gær tókum við viðtal við Jón Pétur, skrifuðum greinar um árshátíðina, samfés, Skrekk og sögu skólans. Í dag ætlum við að taka viðtal við Þorvald.
Við erum búnar að ákveða að prenta blöðin sjálfar en láta gorma fyrir okkur. Á mánudaginn förum við og kaupum blöð og efni í prentunina.
kveðja, Hlín,Hugrún og Stefanía!
15.5.2008 | 10:53
dagur 3
Helú
Í gær fórum við niður í Skeifu að heimsækja prentsmiðju og einnig fórum við í Kúluna og fengum 10.000 króna styrk. Í gær fengum við einnig svör frá Valgeir Guðjónssyni. Við sendum líka mail á fullt af fólki og prentsmiðja og erum að bíða eftir svörum.
Í dag ætlum við að taka viðtal við Jón Pétur aðstoðarskólastjóra og síðan ætlum við að finna fólk til þess að skrifa greinar um ferðalögin í ár.
Heyrumst á morgun, - hugrún, stefanía og hlín
14.5.2008 | 10:44
dagur 2
hæhæ
Þá eru við búnar að taka stutt viðtöl við Jón Gnarr, Frey Eyjólfsson og Gulla Briem og erum að bíða eftir fleiri svörum. Einnig er hönnunin langt á veg komin.
Núna erum við að semja spurningar sem við ætlum að spyrja Þorvald myndmenntakennara og síðan ætlum við að taka mynd af útskriftarmyndinni, búa til plagat um áhuga nemenda á skólablaðinu og spá í prentun á blaðinu.
Heyrumst á morgun
- hugrún, hlín og stefanía
13.5.2008 | 17:01
þá erum við byrjaðar ..
Hæhæ
Þá erum við semsagt byrjaðar á verkefninu að alvöru. Vorum uppí skóla í smá stund að spjalla saman um hvað við gætum gert en fórum svo heim fljótlega. Núna er ég (stefanía) búin að taka stutt viðtal við Jón Gnarr og hann svaraði því strax sem er bara frábært og á meðan er Hugrún að hanna útlitið á blaðinu. Við vitum ekkert hvar hlín er, eflaust að gera eitthvað voðalega skemmtilegt.
Heyrumst á morgun - stefanía, hugrún og hlín
Menntun og skóli | Breytt s.d. kl. 17:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.5.2008 | 11:17
Fyrsti dagurinn
Við erum 3 stelpur í 10.bekk í Réttarholtsskóla sem fengum að velja vorverkefni til að vinna að síðustu vikurnar í skólanum. Verkefni okkar er skólablað og umsjónarkennari okkar er Ásdís.
Í dag ætlum við að byrja að skipuleggja og skipta niður á okkur verkefnum.
heyrumst á morgun,
Hlín,Hugrún og Stefanía